Ísak Óli Sævarsson
2012

 
 

Ísak Óli á vinnustofunni sinni

Ísak Óli var valinn listamaður hátíðarinnar árið 2012

Ísak Óli býr með foreldrum sínum í Reykjavík og er þar að auki umkringdur um 400 plastfígúrum sem eiga sér fyrirmyndir í myndasögubókum, s.s. Strumpum, Barbapabba fjölskyldunni, Skófólkinu, karakterum úr Tinnabókunum ofl. Hann hóf snemma að teikna og síðar að mála þessa karaktera, bæði sem heildstæðan og skýran heim í lífi hans, innan þess heims sem hann og við flest upplifum. 

Ísak Óli útskrifaðist af starfsbraut fyrir fatlað fólk frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ árið 2009, þar gafst honum kostur á að þroska list sína. Síðan hefur hann sótt fjölda námskeiða í Myndlistarskólanum í Reykjavík auk þess sem hann útskrifaðist af diplómabraut Myndlistarskólans í Reykjavík fyrir fólk með þroskahömlun árið 2017. Ísak Óli hefur haldið fjölda sýninga i gegnum árin, bæði einkasýningar og samsýningar, og hefur m.a. verið í samstarfi við Hugleik Dagsson. Þeir sýndu saman verk á Kjarvalsstöðum árið 2014 á sýningunni SAMSUÐA. Ísak Óli var einnig einn af hönnuðum markaðsefnis vegna Stoltgöngunnar sem gengin var árið 2016. Þar vann Ísak Óli í samstarfi við auglýsingastofuna PIPAR/TWBA.

Ísak Óli er í stöðugri þróun sem listamaður og listin þroskar hann sem einstakling. Hann er mjög afkastamikill listamaður og eru fjöldi verka hans í einkaeigu sem og í eigu hins opinbera um land allt. Ísak Óli vinnur mikið með endurtekningu í verkum sínum. Þannig má á vinnustofu hans t.d. sjá óteljandi málverk af strumpunum í öllum mögulegum útfærslum, bræðurna Karíus og Baktus, Valla og Múmínálfana. 

 

 

Brot af verkum ísaks