Hvað er að frétta?
Myndlistarsýningin „Allir ólíkir, allir saman“ opnaði á Bókasafni Héraðsbúa á Egilsstöðum þann 8. maí sl. en sýningin er hluti af listahátíðinni List án landamæra, í samvinnu við Múlaþing.
Fjölmennt var á opnuninni þar sem listunnendur fengu að njóta verka 15 fatlaðra listamanna úr Stólpa á Egilsstöðum.
Við skorum á íslenskan listheim að vinna markvisst að inngildingu
Við köllum liststofnanir, stjórnendur og stjórnvöld til ábyrgðar. Það er skýlaus ábyrgð liststofnana sem reknar eru með sameiginlegum sjóðum og stjórnenda þeirra að taka ábyrgð og vinna að inngildingu í samræmi við samfélagslegar skuldbindingar og Sáttmála Sameinuðu Þjóðana um málefni fatlaðs fólks.
List án landamæra auglýsa eftir listafólki til að sýna á hátíðinni 2022!
Þemaið er Margir Heimar, allskonar líf.
Öll geta sótt um með hvernig list sem er: tónlist, myndlist, leiklist, dans, sögur, ljóð eða hvað sem er annað. Úr umsóknum verður valið inn í sýningar og viðburði í Gerðubergi á dagskrá List án landamæra í október 2022.
Hvað þýðir Margir heimar, allskonar líf? Lesið nánar hér!
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur veitti Elfu Björk Jónsdóttur viðurkenninguna Listamaður Listar án landamæra 2022 við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur þann 3. maí.
Nú er búið að birta dagskrá hátíðarinnar 2021! Hátíðin mun opna þann 26. október kl 17:00 með myndlistarsýningu, tónleikum og ræðuhöldum í Ráðhúsinu. Listamaður hátíðarinnar mun hljóta sérstaka viðurkenningu og öll dagskrá hátíðarinnar verður betur kynnt.
Dagskráin að neðan er ekki tæmandi, fleiri viðburðir munu bætast við. Lifandi dagskrá með nánari upplýsinum um hvern viðburð verður aðgengileg hér á vefnum.
Við hlökkum mikið til að bjóða ykkur velkomin í tveggja vikna menningarveislu!
Þar sem styttri fyrirvari er á tilnefningum í ár heldur en á árum áður hafa listrænn stjórnandi og stjórn ákveðið að framlengja umsóknarfrest í listamann hátíðarinnar til miðnættis sunnudag 5. september næst komandi.