Back to All Events

Ljómar


  • Mjólkurbúðin 12 Kaupvangsstræti Akureyri, Akureyrarbær, 600 Iceland (map)

Velkomin á sýningu nemenda Fjölmenntar laugardaginn 13. maí kl. 14.00 í Mjólkurbúðinni, Sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri. Sýningin er opin um helgar frá 14.00-17.00 til og með 21. maí.

List án landamæra fagnar 20 ára afmæli í ár og nemendur í Fjölmennt á Akureyri fagna tímamótunum með sýningunni „Ljómar“.

Á Sýningunni eru verk eftir Helenu Ósk Jónsdóttur, Bjarka Tryggvason, Gunnhildi Aradóttur, Jón Kristinn Sigurbjörnsson, Jón Viðar Valsteinsson, Kristján Jónsson, Magnús Ásmundsson, Sævar Örn Bergsson og Símon Hólm Reynisson.

Sýningastjórar og leiðbeinendur eru Brynhildur Kristinsdóttir og Jonna Jónborg Sigurðardóttir.

Earlier Event: April 13
Götustrigi í Gallerí Gröf
Later Event: May 13
Sölusýning í Gallerí Fold