Back to All Events

Fúsi: Aldur og fyrri störf

  • Borgarleikhúsið 3 Listabraut Reykjavík, Reykjavíkurborg, 103 Iceland (map)

FACEBOOK VIÐBURÐUR HÉR

MIÐASALA HÉR (verð: 4900kr)

Fúsi, aldur og fyrri störf, er heimildaleiksýning um Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson. Í sýningunni fer Fúsi yfir ævi sína og valin atriði úr fjölbreyttu lífi hans eru færð í leik- og söngbúning með aðstoð leikara og söngvara.

Fúsi er húmoristi, fótboltaáhugamaður, leikari, söngvari og lífskúnstner sem minnir okkur á að lífið er alltaf þess virði að lifa því þó að stundum sverfi að. Hindranirnar í lífi Fúsa hafa eflt hann og hvatt hann til að lifa lífinu til hins ítrasta með fötlun sinni og njóta hvers einasta dags. Stundum er lífsreynsla þó þess eðlis að aldrei verður fyllilega hægt að komast yfir hana, sama hversu jákvæður og sterkur einstaklingur er.

Sýningin byggir á viðtölum við Fúsa, sem Agnar Jón frændi hans og leikstjóri sýningarinnar tók við hann á meðan covid faraldrinum stóð. Tilurð sýningarinnar er því samband frændanna Fúsa og Agga og samverustundir þeirra.

Í samstarfi við sviðslistaframleiðandann Monochorme og List án landamæra.

Höfundar: Agnar Jón Egilsson og Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson

Leikstjórn: Agnar Jón Egilsson

Aðstoðarleikstjórn: Ástbjörg Rut Jónsdóttir

Leikmynd og búningar: Svanhvít Thea Árnadóttir

Tónlist: Egill Andrason - starfsnemi við LHÍ

Leikarar: Agnar Jón Egilsson, Haldóra Geirharðsdóttir, Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson og Vala Kristín Eiríksdóttir.

NÁNAR Á VEFSÍÐU BORGARLEIKHÚSSINS

Earlier Event: November 17
Fúsi: Aldur og fyrri störf
Later Event: December 3
Fúsi: Aldur og fyrri störf