Listvinnzlan: Ómur
List án landamæra vekur athygli á opnun sýningarinnar „Ómur“ í Ásmundarsafni — Listasafni Reykjavíkur, með verkum listafólks LIstvinnzlunnar, listhóps hátíðarinnar 2026. Sýningin opnar þann 14. nóvember kl. 15:00 og stendur til 31. janúar 2027. Sýningarstjóri er Margrét M. Norðdahl.
„Sýningin á rætur sínar að rekja til Selárdals, þar sem listafólk úr Listvinnzlunni skapaði verk í samtali við listheim Samúels Jónssonar. Sýningin var hluti af dagskrá Listahátíðar í Reykjavík sumarið 2026 en hefur nú verið flutt í Ásmundarsafn, þar sem verkin mæta list Ásmundar Sveinssonar í nýju samhengi. Jafnframt hafa ný verk og fleiri listamenn bæst í hópinn.
Á sýningunni mætast ólíkar listrænar raddir, kynslóðir og reynsluheimar. Verkin endurspegla fjölbreyttar leiðir í listsköpun og vekja athygli á mikilvægi þess að ólíkar raddir fái að njóta sín í íslensku listalífi.“
Við óskum listafólki Listvinnzlunnar innilega til hamingju með sýninguna!
Nánari upplýsingar um sýninguna má finna HÉR, á heimasíðu Listasafns Reykjavíkur.
Listafólk:
Andrea Gavern
Atli Már Indriðason
Ásdís Ásgeirsdóttir
Benedikta Rostan
Birkir Sigurðsson
Elín S.M. Ólafsdóttir (ESMÓ)
Elín Fanney Ólafsdóttir
Elísabet Sóldís Þorsteinsdóttir
Erlingur Örn Skarphéðinsson
Esmeralda Lísa Sveinbjörnsdóttir
Frida Adriana Martins
Gígja Garðarsdóttir
Guðbjörg Lára Viðarsdóttir
Guðmundur Stefán Guðmundsson
Gunnar Már Pálsson
Harpa Rut
Helga Matthildur Viðarsdóttir
Hjördís Árnadóttir
Ingimar Azzad Torossian
Ísak Óli Sævarsson
Kári Hrafn Jónsson
Katrín Guðrún Tryggvadóttir
Kolbeinn Jón Magnússon
Kristján B. Rostan
Lilja Dögg Birgisdóttir
Luiza Katarzyna Kierzk
Margrét M. Norðdahl
Óskar Theódórsson
Rut Ottósdóttir
Sigrún Huld Hrafnsdóttir
Sunnefa Gerhardsdóttir
Úlfhildur G. Einarsdóttir
Veronica M. Jarosz
Þórir Gunnarsson (Listapúkinn)
Þorvaldur Arnar Guðmundsson