Embla Guðrúnar Ágústsdóttir sviðslistakona og Listamanneskja hátíðarinnar 2026
Mynd af Emblu Guðrúnar Ágústsdóttur og umfjöllun um frammistöðu hennar í sviðsverkinu Eden
Embla Guðrúnar Ágústsdóttir
Listamanneskja hátíðarinnar 2026
Embla er fjölhæf sviðslistakona og þó að ferill hennar sé í raun rétt að hefjast, hefur hún þegar getið sér gott orð sem leikkona, dansari og danshöfundur. Árið 2023 var Embla tilnefnd til Grímuverðlauna sem dansari ársins fyrir frammistöðu sína í sýningunni Góða ferð inn í gömul sár, sem sýnd var í Borgarleikhúsinu. Af fleiri markverðum sýningum Emblu má nefna leikverkið Eden, sem Embla samdi og sýndi ásamt Nínu Hjálmars á Listahátíð 2024 í Tjarnarbíói. Þá tók Embla þátt í sköpun og flutningi Skammarþríhyrningsins á fjölum Borgarleikhússins í fyrrahaust. Um sama leyti frumflutti Embla dansverkið Nánd ásamt Írisi Stefaníu á Reykjavík Dance Festival. Embla hefur einnig tekið þátt í verkum danshöfundarins Rebeccu Hidalgo sem sýnd hafa verið bæði á Hinsegin dögum og Listahátíð.
Síðastliðinn vetur hóf Embla að bjóða upp á Dansflæði, opna danstíma fyrir fólk með fjölbreytta líkama til að dansa saman í mjúku flæði, kynnast líkömum sínum og tengjast hvort öðru. Afsprengi dansflæðistímanna er dansverkið Þetta fólk, sem frumflutt var í Salnum í Kópavogi á bókmenntahátíðinni Queer Situations. Þetta fólk verður endurskapað og flutt í nýrri mynd á dagskrá Listar án landamæra í Iðnó, þann 11. nóvember nk.
Embla hefur jafnframt látið til sín taka sem fræðikona og sem ötull aðgerðarsinni í málefnum fatlaðs og hinsegin fólks. Hún er ein af stofnendum femínísku fötlunarhreyfingarinnar Tabú, hefur skrifað ýmsar greinar og pistla og samið ljóð. Á heimasíðunni Emblan.is má kynna sér betur þau verkefni sem Embla hefur verið að fást við á undanförnum árum.
Þetta er í fyrsta sinn sem sviðslistamanneskja er valin listamanneskja hátíðarinnar og við óskum Emblu innilega til hamingju og áframhaldandi velgengni á listasviðinu.