Dagskrá Listar án landamæra 2021

Nú er búið að birta dagskrá hátíðarinnar 2021! Hátíðin mun opna þann 26. október kl 17:00 með myndlistarsýningu, tónleikum og ræðuhöldum í Ráðhúsinu. Listamaður hátíðarinnar mun hljóta sérstaka viðurkenningu og öll dagskrá hátíðarinnar verður betur kynnt.

Dagskráin að neðan er ekki tæmandi, fleiri viðburðir munu bætast við. Lifandi dagskrá með nánari upplýsinum um hvern viðburð verður aðgengileg hér á vefnum. Þar koma upplýsingar um alla listamenn sem stíga á stokk.

Við hlökkum mikið til að bjóða ykkur velkomin í tveggja vikna menningarveislu!

List án landamæra