Árlega velur hátíðin listamann ársins og getur hver sem er tilnefnt listamann. Listamaðurinn getur komið úr hvaða listgrein sem er. Verk eftir listamannin fá sértakan heiðursess á hátíðinni það árið og verða þau einnig notuð í kynningarefni um hátíðina.

Frestur til þess að tilnefna listamann hátíðarinnar 2022 er til 30. mars 2022.

Svona er hægt að tilnefna listamann:

Öll geta tilnefnt listamann. Athugið að tilnefna má listafólk úr öllum listgreinum, hvort heldur sem er myndlist, tónlist, ritlist, leiklist, dans, hönnun o.s.frv.

Fylla þarf út eyðublaðið að neðan EÐA senda allar upplýsingar í tölvupósti á info@listin.is í síðasta lagi 30. mars 2022.

Með tilnefningunni skal fylgja:

  • Yfirlit af a.m.k. fimm verkum eftir listamanninn. Hægt er að senda ljósmyndir, upptökur, texta eða hvað sem hentar því listformi sem listamaðurinn vinnur í.

  • Ferilskrá listamannsins sem rekur fyrri sýningar / verkefni og listræn störf

  • Nafn, símanúmer og netfang hjá listamanni og þeim sem tilnefnir.

Tilnefning telst einungis gild ef allar upplýsingar fylgja með.

Ertu með spurningar eða vantar þig aðstoð?

Ekki hika við að hafa samband við info@listin.is eða í síma 6918756

EÐA

Fylla út eyðublað hér:


Við auglýsum alltaf sérstaklega þegar hægt er að tilnefna listamann. Best er að skrá sig á póstlista hátíðarinnar hér að neðan til þess að missa ekki af tilkynningum.