List án landamæra stendur fyrir dagskrá í IÐNÓ sem helguð er listamanneskju hátíðarinnar í ár: Emblu Guðrúnar Ágústsdóttur.
Flutt verður nýjasta höfundarverk Emblu: Þetta fólk. Verkið er einstakt fyrir þær sakir að vera alfarið skapað af hópi fatlaðra dansara, undir stjórn Emblu. Verkið tekur um 20 mínútur í flutningi.
Síðari hluti dagskrárinnar er listamannaspjall við Emblu, leitt af Vigdísi Jakobsdóttur, verkefna- og viðburðarstjóra menningar hjá Kópavogsbæ og fyrrum listrænum stjórnanda Listahátíðar í Reykjavík. Munu þær m.a. ræða um listrænan feril Emblu og þær listrænu aðferðir sem hún beitir.
Ókeypis aðgangur og öll velkomin meðan húsrúm leyfir!
Tryggið ykkur sæti með skráningu á þessari slóð: Skráningarhlekkur
Aðgengi í Iðnó er grænt: Hjólastólaaðgengi, lyfta milli hæða og aðgengilegt salerni á neðri hæð. Viðburðurinn fer fram á jarðhæð í aðalsal IÐNÓ.
Hægt verður að kaupa sér hressingu á barnum.
Dansverkið „Þetta fólk“
Danshöfundur og flytjandi:
Embla Guðrúnar Ágústsdóttir
Danshópur:
Freyja Haraldsdóttir
Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir
Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir
Kristrún Kolbrúnar
Steinunn Anna Radha
Þorbera Fjölnisdóttir
Embla er fjölhæf sviðslistakona og þó að ferill hennar sé í raun rétt að hefjast, hefur hún þegar getið sér gott orð sem leikkona, dansari og danshöfundur.
Síðastliðinn vetur hóf Embla að bjóða upp á Dansflæði, opna danstíma fyrir fólk með fjölbreytta líkama til að dansa saman í mjúku flæði, kynnast líkömum sínum og tengjast hvort öðru. Afsprengi dansflæðistímanna er dansverkið Þetta fólk, sem frumflutt var í Salnum í Kópavogi á bókmenntahátíðinni Queer Situations.
Árið 2023 var Embla tilnefnd til Grímuverðlauna sem dansari ársins fyrir frammistöðu sína í sýningunni Góða ferð inn í gömul sár, sem sýnd var í Borgarleikhúsinu. Af fleiri markverðum sýningum Emblu má nefna leikverkið Eden, sem Embla samdi og sýndi ásamt Nínu Hjálmars á Listahátíð 2024 í Tjarnarbíói. Þá tók Embla þátt í sköpun og flutningi Skammarþríhyrningsins á fjölum Borgarleikhússins í fyrrahaust. Um sama leyti frumflutti Embla dansverkið Nánd ásamt Írisi Stefaníu á Reykjavík Dance Festival. Embla hefur einnig tekið þátt í verkum danshöfundarins Rebeccu Hidalgo, sem sýnd hafa verið bæði á Hinsegin dögum og Listahátíð.
Embla hefur jafnframt látið til sín taka sem fræðikona og sem ötull aðgerðarsinni í málefnum fatlaðs og hinsegin fólks. Hún er ein af stofnendum femínísku fötlunarhreyfingarinnar Tabú, hefur skrifað ýmsar greinar og pistla og samið ljóð. Á heimasíðunni Emblan.is má kynna sér betur þau verkefni sem Embla hefur verið að fást við á undanförnum árum.
Þetta er í fyrsta sinn sem sviðslistamanneskja er valin listamanneskja hátíðarinnar og við óskum Emblu innilega til hamingju og áframhaldandi velgengni á listasviðinu.