MAGGa - einkasýning Margrétar Stefánsdóttur
Margrét Stefánsdóttir, heiðurslistakona Listar án landamæra 2026, opnar einkasýninguna MAGGA í Gallerí Fold laugardaginn 14. nóvember kl. 13:00.
Á sýningunni gefst gestum tækifæri til að kynnast myndheimi Margrétar, en hún hefur um árabil helgað sig listmálun og þróað með sér einstakan og persónulegan stíl. Hún vinnur að mestu með vatnsliti og hefur náð mikilli færni í að nýta flæði þeirra og litbrigði. Verk hennar dansa á mörkum landslags og abstraktlistar þar sem litirnir renna saman og skapa kraftmiklar og lifandi myndheildir.
Margrét hefur stundað myndlist af mikilli ástríðu um árabil og tekið þátt í fjölmörgum sýningum, meðal annars á vegum Listar án landamæra. Í sumar tók hún þátt í samsýningunni Sleppa í hAughúsi í Skagafirði ásamt fleiri myndlistarkonum úr þremur kynslóðum.
Smelltu hér til að lesa nánar um Margréti og listferil hennar.
Við bjóðum öll hjartanlega velkomin á sýningaropnunina og hvetjum gesti til að koma og fagna með Margréti!
Aðgengi:
Aðgengi í Gallerí Fold er ágætt. Aðalinngangurinn er aðgengilegur en rampur að salerni á annarri hæð er brattur.