List án landamæra býður hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar Ofurkonur eftir Gígju Garðarsdóttur í Gallerí Z, nýju sýningarrými í listmiðstöð Listvinnzlunnar, fimmtudaginn 15. október kl. 14–16.
Frida Adriana Martins er sýningarstýra sýningarinnar, sem jafnframt er fyrsta sýningin í Gallerí Z.
Sýningartímabil: 15.–29. október
Opnunartímar: Miðvikudaga kl. 9–12 og fimmtudaga kl. 13–16
Um Gallerí Z
Gallerí Z er nýtt sýningarrými í listmiðstöð Listvinnzlunnar – veggur með stórt hlutverk.
Þar sýnir listafólk sem starfar á vettvangi Listvinnzlunnar verk sín og það er listafólkið sjálft sem stýrir sýningunum. Listafólk Listvinnzlunnar skiptist á að taka að sér hlutverk sýningarstjóra, velja verk eftir samstarfsfólk sitt, ákveða hvernig þau mætast á veggnum og hvaða sögu þau segja saman.
Hver sýning verður þannig persónuleg sýn eins listamanns á verk annars og veggurinn tekur á sig nýja mynd í hvert sinn sem nýr sýningarstjóri tekur við.
Að stýra sýningu snýst um að velja, raða og ákveða hvað fær að sjást. Í listheiminum hefur það hlutverk sjaldnast verið í höndum fatlaðs listafólks. Í Gallerí Z er því snúið við: listafólkið sjálft er bæði höfundar og sýningarstjórar og horfir á verk hvert annars með augum sem þekkja vinnuna, efniviðinn og vinnustofuna innan frá.
Um sýninguna
„Við lifum á skrýtnu tímabili. Staða kvenna verður sífellt erfiðari víða um heim en ofurhetjur hafa oft gefið fólki von. Málverk Gígju vekja athygli á kvenkyns ofurhetjum og sterkum kvenpersónum. Þær eru fyrirmyndir, í öllum regnbogans litum.“
— Frida Adriana Martins, sýningarstýra
Um Gígju
Gígja Garðarsdóttir starfar að listsköpun sinni í Listvinnzlunni. Hún hefur lagt stund á myndlistarnám og skapandi starf bæði í námi og starfi.
Hún lauk diplómanámi í myndlist frá Myndlistaskólanum í Reykjavík árið 2017, þar sem hún lagði stund á fjölbreyttar listgreinar, meðal annars myndlist, leirlist, tónlist og stuttmyndagerð. Hún hefur einnig lokið starfstengdu diplómanámi við Háskóla Íslands (2010–2012).
Verk Gígju einkennast af lifandi og fjölbreyttu myndmáli þar sem litir, form og hugmyndir fléttast saman í sterka heild. Myndheimur hennar er kraftmikill og tilraunakenndur og ber með sér sterka tengingu við tónlist, kvikmyndir, ævintýri og poppmenningu.
Verkin á sýningunni eru til sölu.
Aðgengi í Listvinnzlunni:
Listvinnzlan er á 3. hæð í Austurstræti 5. Tveir inngangar eru í húsnæðið - frá Austurstræti 5 og Hafnarstræti 6.
Við innganginn frá Hafnarstræti 6 er rampur og lyfta með góðu aðgengi fyrir fólk í hjólastól. Við innganginn frá Austurstræti er þröskuldur og lyfta.
Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru í nágrenni Listvinnzlunnar.