Verið hjartanlega velkomin á hátíðarsetningu Listar án landamæra 2026!
föstudaginn 2. október, frá klukkan 14:00 - 16:00
í Safnahúsinu við Hverfisgötu.
Hátíðardagskrá verður kynnt og listafólk ársins hlýtur viðurkenningar.
Kórinn BjartSýni flytur nokkur lög.
Að dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar veitingar.
Aðgengi: Safnahúsið er aðgengilegt fólki sem notar hjólastól. Lyfta er í húsinu og aðgengilegt salerni er á jarðhæð. Hjólastóll er einnig til láns.
Þessi viðburður er táknmálstúlkaður.
Hlökkum til að sjá þig!
Aðalstyrktaraðilar Listar án landamæra
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti
• Reykjavíkurborg
• ÖBÍ réttindasamtök