Margrét Stefánsdóttir í Gallerí Fold
Myndlistarkonan Margrét Stefánsdóttir, heiðurslistamanneskja Listar án landamæra 2026, opnaði einkasýningu sína, MAGGA, í Gallerí Fold laugardaginn 14. nóvember.
Sýningin stendur til 5. desember og eru verkin til sölu - nánari upplýsingar má finna á vef gallerísins.
Margrét á að baki sérstakan feril; hún starfaði áður sem kennari en fór að einbeita sér að listmálun eftir alvarlegt slys sem hafði mikil áhrif á færni hennar og tjáningargetu. Listsköpun hefur þó alla tíð verið mikilvægur hluti af lífi hennar og áður en slysið varð stundaði hún meðal annars nám í keramík við Myndlistaskólann í Reykjavík.
Margrét hefur ríka þörf fyrir að skapa og hefur í gegnum árin málað fjölda verka. Myndlistin er henni mikilvæg tjáningarleið og á sýningunni gefst gestum tækifæri til að kynnast einstökum vatnslitaverkum hennar.
Við hvetjum ykkur til að líta við í Gallerí Fold!
Hér fyrir neðan má sjá svipmyndir frá opnun sýningarinnar.
Sýningarstjórn: Iðunn Vignisdóttir
Ljósmyndir: Andreas Hopfgarten