Sýningaropnun Furðufuglar á hugarflugi

Laugardaginn 10. október var samsýningin Furðufuglar á hugarflugi opnuð í Gerðubergi.

Sýningin teflir saman verkum eftir fjölbreyttan hóp listafólks, bæði úr Listvinnzlunni og víðar að. Listvinnzlan er listhópur Listar án landamæra 2026.

Sýningarstjórar eru Elín Sigríður María Ólafsdóttir og Kolbeinn Jón Magnússon úr Listvinnzlunni.

Þetta er í fyrsta sinn sem fatlað listafólk sér alfarið um sýningarstjórn á sýningu á vegum Listar án landamæra.

Kveikjan að sýningunni er spurningin: Hvernig er Ísland og hver erum við? Í verkunum birtist fjölbreytt og ævintýraleg sýn á landið, þar sem álfar, fuglar, poppvíkingar og alls kyns furðufuglar fá að njóta sín.

Við mælum með að kíkja á sýninguna sem stendur til 6. nóvember í Gerðubergi.

Við óskum Listvinnzlunni og öllu listafólkinu innilega til hamingju með sýninguna! 💛

Ljósmyndir: Andreas Hopfgarten

List án landamæra