Frábærar viðtökur á opnun sýningar á Egilsstöðum
Allir ólíkir, allir saman
Myndlistarsýningin „Allir ólíkir, allir saman“ opnaði á Bókasafni Héraðsbúa á Egilsstöðum, þann 8. maí sl. en sýningin er hluti af listahátíðinni List án landamæra í samvinnu við Múlaþing.
Margt var um manninn á opnuninni þar sem listunnendur fengu að njóta verka 15 fatlaðra listamanna úr Stólpa á Egilsstöðum. Nöfn listafólksins má lesa hér neðar.
Listrænn stjórnandi samsýningarinnar er Zuzana Cremanova, leiðbeinandi á Stólpa, sem hefur haldið utan um hugmyndir, þemu og virka sköpun listafólksins frá því í desember á síðasta ári.
Verkin á sýningunni spretta upp úr hæfileikum og ríkri tjáningarþörf sem er óháð öðrum takmörkunum lífsins. Listafólkið leggur hluta af sjálfu sér í verkin og í þeim má finna tilfinningar, sögur og kyrr augnablik sem segja meira en mörg orð. Sjálfsmyndirnar fanga sömuleiðis annað og meira en ytra útlit, þær birta bæði sýn listafólksins á sig sjálft og umheiminn og tjá djúpa sammannlega þörf fyrir að vera séð og skilin.
Sýningin stendur til júníloka og eru öll hvött til að gera sér ferð á Bókasafn Héraðsbúa til að berja hana augum. Gestum er jafnframt boðið að tjá tilfinningar sínar eða hugsanir út frá sýningunni í gestabókina sem liggur frammi.
Verk á sýningunni eiga:
Birna Kristín Guðnadóttir, Daníel Björnsson, Eðvarð Björn Kristjánsson, Heiðar Hannes Ólafsson, Jónína Bára Benediktsdóttir, Kári Sveinsson, Kristbjörn Ingibjörnsson, María Sverrisdóttir, Nikolas Isak Battyanyi, Randý Arnbjörg Jóhannsdóttir, Sjöfn Sigurðardóttir, Soffía Hallgrímsdóttir, Stefanía Þóra Margeirsdóttir og Sveinn Bjarnason
Flestar af myndunum sem fylgja fréttinni tók: Birna Kristín Guðnadóttir