Frestur til að tilnefna listamann hátíðarinnar framlengdur til 5. september

Þar sem styttri fyrirvari er á tilnefningum í ár heldur en á árum áður hafa listrænn stjórnandi og stjórn ákveðið að framlengja umsóknarfrest í listamann hátíðarinnar til miðnættis sunnudag 5. september næst komandi.

Við viljum ítreka að:

  • Listafólk má tilnefna sjálft sig.

  • Ef þú vilt tilnefna listamann sem þú þekkir ekki persónulega, þá getum við hjá hátíðinni verið milliliður við að hafa samband við listamanninn til að fá upplýsingar eins og ferilskrá og myndir af verkum.

  • Jóhanna, listrænn stjórnandi, getur endilega aðstoðað við gerð umsókna. Ekki hika við að hafa samband við info@listin.is eða í síma 6918756 til að fá ráð eða bóka fund.





List án landamæra