Listamaður hátíðarinnar 2016

Listamaður Listar án landamæra 2016 er Erla Björk Sigmundsdóttir (1973).11 12 Um ErluErla vinnur markvisst að list sinni á vefstofu Sólheima og hefur gert það frá árinu 2010. Útsaumsverk hennar njóta athygli og hrifningar og hefur henni verið boðið að taka þátt í fjölmörgum sýningum, meðal annars á listahátíðinni List án landamæra í Þjóðminjasafn-inu og í Norræna húsinu, ásamt því að verk hennar hafa prýtt dagatal Þroskahjálpar sem ár hvert fær valinkunna listamenn til liðs við sig.Verk Erlu endurspegla kraftinn sem í henni býr, hún tjáir sig í ólíkum formum og list-sköpun hennar býr yfir sterkum persónulegum stíl. Í verkum sínum hleður Erla garninu upp beggja vegna strigans og í honum, og vekur það furðu áhorfenda hvernig hún fer að því að koma nálinni og spottanum í gegnum hnausþykk efnin. Verk hennar eru annað hvort fígúratíf eða óhlutbundin formgerð, en ætíð einlæg, kraftmikil, tjáningarík og fögur.

Margrét M. Norðdahl
ÓflokkaðIris