Listamaður hátíðarinnar 2018 og kynning á hátíðinni

GiaLaxnesogMegas.jpg

Fimmtudaginn 22. febrúar nk. kl. 17:00 verður tilkynnt hvaða listamaður hefur verið valinn listamaður List án landamæra í ár ásamt því að fyrirkomulag hátíðarinnar fyrir árið 2018 verður kynnt. Viðburðurinn verður haldin á Kjarvalsstöðum.List án landamæra í ár verður haldin dagana 3. til 13. maí um land allt. Sérstök áhersla verður lögð á tímatengdar listir svo sem vídjóverk, leiklist, tónlist og ljósmyndir. Hátíðin skipuleggur viðburði undir sínu nafni en allir geta sótt um að taka þátt, óháð listformi. Á fundinum gefst tækifæri á að spyrja út í fyrirkomulag hátíðarinnar, skipulag viðburða og annað sem tengist hátíðinni. Fundurinn er opinn öllum sem áhuga hafa á hátíðinni og vonumst við til þess að sjá sem felsta.Fyrir þá sem ekki komast verður viðburðnum streymt á Facebook-síðu Listar án landamæra http://www.facebook.com/listanlandamaera. Einnig má senda allar fyrirspurnir á netfangið listanlandamaera@gmail.com.

ÓflokkaðIris