Listamarkaður og opið stúdíó hjá Listvinnzlunni um helgina!
List og handverk í Ráðhúsi Reykjavíkur um helgina
Árlegur list- og handverksmarkaður Listar án landamæra fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur helgina 21. og 22. nóvember. Á markaðnum verður fjölbreytt úrval listaverka og handverks eftir fatlað listafólk og þar gefst kjörið tækifæri til að næla sér í einstakar jólagjafir.
Hvað er í boði?
Á markaðnum verður hægt að skoða og kaupa alls kyns verk og handunnar vörur, meðal annars:
Myndlist og keramík
Kerti og skartgripi
Prjónavörur og ýmsa gjafavöru
Markaðurinn er fastur liður á vegum Listar án landamæra og skapar vettvang fyrir fatlað listafólk til að kynna og selja verk sín, hitta gesti og koma listsköpun sinni á framfæri. Það verður notaleg stemning í Ráðhúsinu og heitt á könnunni. Gestir eru hvattir til að líta við, njóta listarinnar og styðja við listafólkið með því að versla beint af því.
Hvar: Ráðhús Reykjavíkur
Hvenær: Laugardaginn 21. og sunnudaginn 22. nóvember kl. 12:00–17:00
Aðgangur: Ókeypis og öll hjartanlega velkomin
Opið stúdíó og salonsýning hjá Listvinnzlunni
Samhliða markaðnum býður Listvinnzlan, listhópur Listar án landamæra 2026, gestum að heimsækja vinnustofur sínar í miðbænum laugardaginn 21. nóvember.
Af því tilefni verður efnt til salonsýningar þar sem veggir Listvinnzlunnar verða þaktir listaverkum frá gólfi til lofts. Ólíkar listrænar aðferðir og myndheimar mætast á sýningunni og gestum gefst tækifæri til að kynnast starfsemi Listvinnzlunnar, hitta listafólkið og sjá hvar verkin verða til.
Fjöldi verka verður til sölu og það er því tilvalið að nýta ferðina í miðbæinn til að heimsækja bæði markaðinn í Ráðhúsinu og opna stúdíóið.
Hagnýtar upplýsingar
Hvar: Austurstræti 5 (3. hæð), 101 Reykjavík
Hvenær: Laugardaginn 21. nóvember kl. 15:00–17:00
Aðgengi: Inngangur er bæði frá Austurstræti 5 og Hafnarstræti 6. Rampur og stór lyfta er Hafnarstrætismegin sem hentar betur fólki sem notar hjólastól. Nánari upplýsingar um aðgengi og bílastæði má finna hér (tengja við listvinnslan.is/adgengid).
Við hvetjum öll til að leggja leið sína í miðbæinn um helgina, njóta fjölbreyttrar listsköpunar og styðja við fatlað listafólk!