Til hamingju með List án landamæra 2020!

Um 50 listamenn deila listsköpun sinni með gestum á hátíðinni 2020, á 10 mismunandi sýningastöðum, sem allir hafa sannað sig sem málsmetandi vettvangur listar í landinu og velja listamenn inn í sitt mengi byggt á því að listamenn hafi eitthvað mikilvægt og gefandi fram að færa.
Og því er svo sannarlega að heilsa á hátíðinni árið 2020 sem fyrri ár!

(sjá dagskrá hátíðarinnar 2020 hér að neðan)

List án landamæra er listahátíð er leggur áherslu á list fatlaðs fólks. Hátíðin var fyrst haldin árið 2003 á Evrópuári fatlaðra og hefur verið haldin árlega síðan. Hátíðin sýnir öll listform og stendur fyrir samstarfi á milli listamanna. Hátíðin er eini vettvangurinn á Íslandi sem leggur alfarið áherslu á listsköpun fatlaðs listafólks og hefur skapað sér sérstöðu innan menningarlífsins á Íslandi.
Sérstök áhersla er lögð á myndlist á árinu 2020 og þá á einkasýningar svo og samsýningar á viðurkenndum sýningastöðum í Reykjavík og í nokkrum nágrannabæjarfélögum.

Markmið með því að þátttakendur sýni verk sín í viðurkenndum sýningarýmum er að stuðla að inngildingu fatlaðra listamanna í listheiminum, að fatlaðir listamenn fái notið sín fyrir eigin listhæfileika og sköpunarkraft.


Árið 2020 er sautjánda árið sem hátíðin er haldin og hefur það um margt verið sérstakt og krefjandi ár vegna heimsfaraldurs og ýmissa þrenginga í kjölfarið.
Við erum afar stolt af og þakklát fyrir að hafa getað haldið hátíðina af metnaði á seinni hluta ársins 2020 og hlökkum til þess að halda hana áfram árlega.


DAGSKRÁ LISTAR ÁN LANDAMÆRA 2020

Hlaðvarp – Mannréttindi Fatlaðra - viðtöl við stjórnendur menningarstofnana og samtöl um áform og aðferðir til að bæta aðgengi og stöðu fatlaðra varðandi menningu og listir. Maí 2020 - maí 2021. Umsjónarmenn eru Aileen Soffía Svensdóttir og Haukur Guðmundsson, í samstarfi við List án landamæra.
https://soundcloud.com/mannr-ttindi-fatla-ra


SÝNINGAR OG VIÐBURÐIR:

Gallerí Port
Laugavegi 23b, 101 Rvk.
Einkasýning Hrafns Jónssonar – Krumma. Ljósmyndir
Skrölt III
Opið 23. október - 8. nóvember.
Mið-lau kl.12:00-18:00.

Gallerí Grótta
Eiðistorgi 11, 170 Seltjarnarnesi.
Það bera sig allir vel
Samsýning 38 listamanna.
Tvívíð og þrívíð myndverk.
Opið eftir samkomulagi vegna Covid-19 takmarkana. Verið velkomin að hafa samband: info@listin.is

Hannesarholt
Grundarstíg 10, 101 Rvk.
Einkasýning Björns Traustasonar. Teikningar.
Opið 23. október - 1. nóvember.
Þrið-sun kl.11:30-17:00.

Hjarta Reykjavíkur
Laugavegi 12b, 101Rvk.
Einkasýning Helenu Óskar Jónsdóttur frá Akureyri. Vatnslitamálverk og skúlptúrar.
Opið 25. október – 15. nóvember.
Mán-lau kl.11:00-18:00.

Listasafn Árnesinga
eykjamörk, Hveragerði.
Samsýning Pálínu Erlendsdóttur og Elvu Bjarkar Jónsdóttur, íbúa á Sólheimum.
Opið 20. október – 1. nóvember.
Þrið-sun kl.12:00-17:00.

Listasalur Mosfellsbæjar
Einkasýning Helgu Matthildar Viðarsdóttur – listamanns hátíðarinnar 2020. Teikningar og málverk.
Opið 23. október - 13. nóvember. Opið eftir samkomulagi vegna Covid-19 takmarkana. Verið velkomin að hafa samband: info@listin.is

Midpunkt
Hamraborg 22, 200 Kópavogi.
Samsýning fatlaðra og ófatlaðra listamanna. Anna Jóelsdóttir & Erla Björk Sigmarsdóttir og Arnar Ásgeirsson & Gísli Kristinsson. Tví- og þrívíð verk.
Opið 23. - 29.október.
Opið fös-lau kl.12:00-17:00. Sun-fim kl.14:00 – 17:00 og eftir samkomulagi.

Norræna húsið
29. okt kl.17:00-18:00: Viðburður í miðjusal (án gesta vegna C-19 fjöldatakmarkana, en streymt í rauntíma á heimasíðu og samfélagsmiðlum hátíðarinnar).
Viðburðir: 1. Vídeóprógram-1 aðgengilegt á netinu í 4 daga (vídeóverk nemenda Myndlistarskólans í Reykjavík. 8mín), 2. Vídeógjörningur Steinars Svan Birgissonar(30mín), 3. Vídeóprógram-2aðgengilegt á netinu í 4 daga (Teikninga-leir bók á slides eftir Hauk Hafliða Björnsson frá Blönduósi. 10mín).

Ráðhús Reykjavíkur
Brandur Bjarnason Karlsson munnmálari, málverk.
Opið 23. okt – 22. nóv.
Opið mán-fös kl.08:00-18:00, lau kl.10:00-18:00, sun kl.12:00-18:00.

DESEMBER 2020
3.-31. desember: Þátttaka fimm listamanna Listar án landamæra í desembersýningu Ásmundarsalar í Reykjavík. Opnun 3. desember á alþjóðlegum degi fatlaðra. Á sýningunni í Ásmundarsal eru sýnd verk um 80 íslenskra myndlistarmanna. Þeirra á meðal eru fimm listamenn á vegum Listar án landamæra; Atli Már Indriðason, Björn Þorsteinsson, Elfa Björk Jónsdóttir, Helga Matthildur Viðarsdóttir og Steinar Svan Birgisson.


List án landamæra 2020 er stutt af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Reykjavíkurborg, Öryrkjabandalaginu-ÖBÍ og Góða hirðinum-Sorpu.

List án landamæra