Frestur var til 16. febrúar 2024

Tilkynnt verður um val á listamanneskju og listhóp 2024 í apríl.

Það er samt velkomið að hafa samband (info@listin.is) ef þú hefur áhuga á að taka þátt í hátíðinni.


Árið 2024 verður valinn einn listhópur OG ein listamanneskja ársins.

Vilt þú stinga upp á listafólki Listar án landamæra?

Veist þú um fatlaða listamanneskju eða hóp af listafólki sem eiga skilið að fá viðurkenningu fyrir listsköpun sína? Einhvern sem semur ljóð, spilar tónlist, leikur á sviði, dansar, syngur, býr til kvikmyndir, málar málverk, teiknar teiknimyndasögur?

Sendu okkur tilnefningu! (það má tilnefna sjálfan sig!)

Það gerir þú með því að senda okkur póst á netfangið info@listin.is eða með því að fylla út eyðublaðið hér fyrir neðan.

Ef þú vilt fá aðstoð við að tilnefna (stinga upp á) þá getur þú hringt í okkur í síma: 6918756 eða sent okkur tölvupóst á info@listin.is og við hjálpum þér! 

Hægt er að tilnefna (stinga upp á) listafólki og listahópum í þessa tvo flokka:

  • Sviðslistir og tónlist 

    • Þau sem falla í þennan flokk eru: Leikarar, leikhópar, handritshöfundar, rithöfundar og ljóðskáld, danslistafólk, danshöfundar og danshópar, sirkus listafólk eða sirkus lista hópar, leikstjórar, kvikmyndagerðafólk og hópar, tónlistarfólk, söngvarar, hljómsveitir, kórar, plötusnúða (listinn er ekki tæmandi). 

  • Myndlist og hönnun

    • Þau sem falla í þennan flokk eru: Myndlistafólk, myndlistahópar og hönnuðir sem vinna með ólíkan efnivið eins og til dæmis olíu, akríl, keramík, tréverk, textíl, ljósmyndir og videóverk og annan efnivið (listinn er ekki tæmandi). 

Dómnefnd mun sjá um að velja listafólk og tilkynna val í mars.

Með tilnefningunni skal fylgja:

  • Yfirlit af a.m.k. fimm verkum eftir listamanneskjuna eða listhópinn. Hægt er að senda ljósmyndir, hljóðupptöku, myndbönd, texta eða hvað sem hentar því listformi sem listamanneskjan eða listhópurinn vinnur í

  • Smá texti um listamanneskjuna eða listhópinn

  • Nafn, símanúmer og netfang hjá listamanneskju/listhópinn og þeim sem tilnefnir

Ertu með spurningar eða vantar þig aðstoð?

Ekki hika við að hafa samband við info@listin.is eða í síma 6918756

Hægt er að tilnefna til 16. febrúar

 

EÐA

Fylla út eyðublað hér

 
 

Við auglýsum alltaf sérstaklega þegar hægt er að tilnefna listamann. Best er að skrá sig á póstlista hátíðarinnar hér að neðan til þess að missa ekki af tilkynningum.