List án landamæra 2026 er hafin!
Listahátíð Listar án landamæra var sett við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu, föstudaginn 2. október síðastliðinn.
Við athöfnina afhentu Þorvaldur Davíð Kristjánsson, fyrir hönd menningarráðs Reykjavíkurborgar, og Ása Fanney Gestsdóttir, listrænn stjórnandi Listar án landamæra, þrenn verðlaun fyrir fullum sal gesta.
Kórinn Bjartsýni söng ofur fallega undir stjórn Stefan Sand og listafólk hátíðarinnar þakkaði fyrir sig með flottum ræðum. Að lokum var skálað og notið ljúfrar samveru í tignarlegum lestrarsal Safnahússins. Hér fyrir neðan má sjá myndir frá opnuninni!
Við óskum útnefndu listafólki hátíðarinnar innilega til hamingju!
Embla Guðrúnar Ágústsdóttir er listamanneskja hátíðarinnar 2026
Margrét Stefánsdóttir er heiðurslistamanneskja
2026
Listvinnzlan er listhópur hátíðarinnar
2026
Næst á dagskrá er opnun samsýningarinnar Furðufuglar á hugarflugi, í Gerðubergi, laugardaginn 10. október kl. 13:00. Listvinnzlan, listhópur hátíðarinnar verður í aðalhlutverki á sýningunni. Sýningarstjórar eru þau Kolbeinn Jón Magnússon og Elín Sigríður María Ólafsdóttir úr Listvinnzlunni og hafa þau vandlega valið verk eftir listafólkið þaðan en líka víðar að. Sýningin stendur til 6. nóvember.
Sviðsviðburður helgaður Emblu Guðrúnar Ágústsdóttur, verður í Iðnó miðvikudagskvöldið 11. nóvember. Þá verður m.a. flutt dansverkið Þetta fólk, og tekið verður listamannaspjall við danshöfundinn Emblu, sem er listamanneskja hátíðarinnar í ár. Nánari dagskrá verður auglýst síðar.
Sölusýning á úrvali vatnslitaverka eftir Margréti Stefánsdóttur, heiðurslistamanneskju hátíðarinnar, verður í Gallerí Fold og opnar sýningin laugardaginn 14. nóvember kl. 14:00.
Fleiri viðburðir eiga eftir enn að bætast við og verða auglýstir á heimasíðu hátíðarinnar listin.is og á Facebook.
Hátíðinni lýkur svo með hinum árlega list- og handverksmarkaði í Ráðhúsi Reykjavíkur, helgina 21.–22. nóvember.
List án landamæra er styrkt af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, Reykjavíkurborg og ÖBÍ réttindasamtökum.
Ljósmyndari: Andreas Hopfgarten