Listafólk hátíðarinnar 2026

TIL HAMINGJU!


Listamanneskja hátíðarinnar:

Embla Guðrúnar Ágústsdóttir

Heiðursverðlaun Listar án landamæra: 

Margrét Stefánsdóttir

Listhópur hátíðarinnar:

Listvinnzlan 


Listafólkið verður heiðrað við setningu hátíðarinnar 

Í Safnahúsinu við Hverfisgötu 15

föstudaginn 2. október, kl. 14:00-16:00

Öll velkomin meðan húsrúm leyfir!

aðgengi gott - lyfta - táknmálstúlkun
léttar veitingar - kórinn Bjartsýni syngur



Listamanneskja hátíðarinnar 2026

Embla Guðrúnar Ágústsdóttir

Embla er fjölhæf sviðslistakona og þó að ferill hennar sé í raun rétt að hefjast, hefur hún þegar getið sér gott orð sem leikkona, dansari og danshöfundur. Árið 2023 var Embla tilnefnd til Grímuverðlauna sem dansari ársins fyrir frammistöðu sína í sýningunni Góða ferð inn í gömul sár, sem sýnd var í Borgarleikhúsinu. Af fleiri markverðum sýningum Emblu má nefna leikverkið Eden, sem Embla samdi og sýndi ásamt Nínu Hjálmars á Listahátíð 2024 í Tjarnarbíói. Þá tók Embla þátt í sköpun og flutningi Skammarþríhyrningsins á fjölum Borgarleikhússins í fyrrahaust. Um sama leyti frumflutti Embla dansverkið Nánd ásamt Írisi Stefaníu á Reykjavík Dance Festival. Embla hefur einnig tekið þátt í verkum danshöfundarins Rebeccu Hidalgo sem sýnd hafa verið bæði á Hinsegin dögum og Listahátíð.

Síðastliðinn vetur hóf Embla að bjóða upp á Dansflæði, opna danstíma fyrir fólk með fjölbreytta líkama til að dansa saman í mjúku flæði, kynnast líkömum sínum og tengjast hvort öðru. Afsprengi dansflæðistímanna er dansverkið Þetta fólk, sem frumflutt var í Salnum í Kópavogi á bókmenntahátíðinni Queer Situations. Þetta fólk verður endurskapað og flutt í nýrri mynd á dagskrá Listar án landamæra í Iðnó, þann 11. nóvember nk.

Embla hefur jafnframt látið til sín taka sem fræðikona og sem ötull aðgerðarsinni í málefnum fatlaðs og hinsegin fólks. Hún er ein af stofnendum femínísku fötlunarhreyfingarinnar Tabú, hefur skrifað ýmsar greinar og pistla og samið ljóð. Á heimasíðunni Emblan.is má kynna sér betur þau verkefni sem Embla hefur verið að fást við á undanförnum árum.

Þetta er í fyrsta sinn sem sviðslistamanneskja er valin listamanneskja hátíðarinnar og við óskum Emblu innilega til hamingju og áframhaldandi velgengni á listasviðinu.

 

Embla Guðrúnar Ágústsdóttir — Listamanneskja hátíðarinnar 2026



Heiðursverðlaun Listar án landamæra 2026: 

Margrét Stefánsdóttir

Margrét Stefánsdóttir myndlistarkona hlýtur heiðursnafnbót Listar án landamæra í ár. Ferill hennar í listinni er sérstakur, hún starfaði áður sem kennari en byrjaði að einbeita sér að listmálun eftir alvarlegt slys sem hafði mikil áhrif á færni hennar og tjáningargetu. Hún hefur þó alla tíð verið mjög listræn og fyrir slysið stundaði hún nám í keramíklist í Myndlistaskólanum í Reykjavík.

Margrét hefur ríka þörf fyrir að mála og eftir hana liggja fjölmörg verk eftir áralanga og stöðuga listiðkun. Hún hefur að mestu helgað sig vatnslitamálun, þróað þar persónulegan stíl og náð einstöku valdi á flæði og litbrigðum í krefjandi miðli. Sú vegferð hófst fyrir um átta árum síðan, undir handleiðslu Sigga Vals Sigurðssonar teiknara:

„Einhver furðuleg lukka stýrði því að ég valdi að láta Margréti glíma við óútreiknanlega hegðun vatnslita á vel blautu yfirborði góðs vatnslitapappírs. Hún hefur náð undraverðum árangri. Verkin dansa á mörkum hlutlægra stemmninga landslags, oft í átökum eldgosa, og algjörrar abstrakt listar þar sem frelsi í myndrænni túlkun gefur í engu eftir list atvinnumyndlistarmanna. Færni Margrétar hefur þroskast jafnt og þétt þar sem hún óhrædd lætur litina sprengjast inn í hvern annan.“

Í sumar sem leið tók Margrét þátt í samsýningunni Sleppa í listsalnum hAughúsi, í Héraðsdal í Skagafirði, á vegum Akademíu Skynjunarinnar. Á sýningunni voru verk eftir sjö mæðgnapör myndistarkvenna. Systurnar Margrét og Ragnhildur Stefánsdóttir sýndu þar ásamt dætrum sínum, Láru Margrétardóttur og Ragnhildi Láru Weisshappel. Margrét hefur auk þess tekið þátt í sýningum Listar án landamæra.

Á hátíðinni í ár mun Margrét sýna úrval verka sinna á einkasýningu í Gallerí Fold, sem opnar laugardaginn 14. nóvember 2026.

Til hamingju með heiðursnafnbótina Margrét Stefánsdóttir!


Margrét Stefánsdóttir — Heiðurslistamanneskja hátíðarinnar

Verk eftir Margréti Stefánsdóttur, heiðurslistamanneskju Listar án landamæra



Listvinnzlan er listhópur hátíðarinnar 2026

Listafólk úr Listvinnzlunni á sýningunni sinni Ómur, í Listasafni Samúels í Selárdal

Listhópur hátíðarinnar 2026:

Listvinnzlan 

Listvinnzlan er fjölbreyttur hópur listafólks, sem stundar faglega listsköpun. Fjöldi verka eftir meðlimi Listvinnzlunnar verður á samsýningunni Furðufuglar á hugarflugi, sem opnar í Gerðubergi laugardaginn 10. október nk. og stendur til 6. nóvember. Sýningarstjórarnir, Kolbeinn Jón Magnússon og Elín Sigríður María Ólafsdóttir, eru einnig úr röðum Listvinnzlunnar. Þetta er í fyrsta sinn sem fatlað listafólk sér alfarið um sýningarstjórn á sýningu Listar án landamæra.

Listvinnzlan var stofnuð árið 2022 af Margréti M. Norðdahl en byggir á áralangri reynslu. Þar vinnur listafólk að eigin verkum með ólíka miðla og efnivið, meðal annars; teikningu, málverk, skúlptúr, myndasögur, kvikmyndalist og gjörninga. Í Listvinnzlunni fær fólk rými til að þróa eigin listræna rödd og koma verkum sínum á framfæri með sýningum, samstarfsverkefnum og öðrum listviðburðum. Mörg úr hópnum hafa áður sýnt á List án landamæra, og í honum eru einnig nokkrar fyrrverandi listamanneskjur hátíðarinnar.

Á Listahátíð í Reykjavík fyrr á árinu hélt Listvinnzlan sýninguna Óm í Listasafni Samúels í Selárdal. Þar voru sýnd ný verk sem unnin voru í samtali við verk Samúels Jónssonar og einstakan höggmyndagarð hans. Stefnt er að því að sýningin lifi áfram í einhverri mynd á hátíð Listar án landamæra í ár.

Á fáum árum hefur Listvinnzlan vaxið ört og er orðin mikilvægur vettvangur listafólks á Íslandi. Hún er meira en vinnustofa. Hún er lifandi listasamfélag þar sem fólk mótar eigin feril á eigin forsendum. Innan Listvinnzlunnar fær listafólk stuðning til að vaxa inn í þau hlutverk sem það kýs sér, til dæmis sem ráðgjafar, kennarar eða sýningarstjórar, líkt og Elín og Kolbeinn gera nú. Meirihluti starfsfólks og kennara er sjálft fatlað fólk. Þannig breytir Listvinnzlan ekki aðeins því hver fær að skapa list, heldur líka því hver velur, kennir og miðlar. Það skiptir máli fyrir íslenskt samfélag, því lista- og menningarlíf sem endurspeglar okkur öll er ríkara, fjölbreyttara og sannara.

Til hamingju Listvinnzlan — Listhópur hátíðarinnar 2026!

 
List án landamæra