Opið fyrir tilnefningar listafólks hátíðarinnar 2026

Óskað eftir tilnefningum til listamanneskju og listhóps ársins 2026

HUGMYNDIR OG ÞÁTTTÖKUVERKEFNI:

Ertu með góða hugmynd fyrir hátíðina? Sendu okkur tölvupóst á info@listin.is

TILNEFNINGAR LISTAFÓLKS:

Veist þú um fatlaða listamanneskju eða hóp listafólks sem á skilið að fá viðurkenningu fyrir listsköpun sína?

Sendu okkur tilnefningu!

Það má líka tilnefna sjálf sig!

Fylltu út eyðublaðið hér neðst á síðunni eða sendu okkur póst á netfangið info@listin.is 

Ef þú vilt fá aðstoð við að tilnefna (stinga upp á listamanneskju) þá getur þú hringt í okkur í síma: 6918756 eða sent okkur tölvupóst á info@listin.is og við hjálpum þér! 

Hægt er að tilnefna (stinga upp á) listafólki og listahópum í þessum tveimur flokkum:

  • Sviðslistir og tónlist 

    • Leikarar, leikhópar, handritshöfundar, rithöfundar og ljóðskáld, danslistafólk, danshöfundar og danshópar, sirkus listafólk eða sirkus listhópar, leikstjórar, kvikmyndagerðafólk og hópar, tónlistarfólk, hljómsveitir, kórar, plötusnúðar (listinn er ekki tæmandi). 

  • Myndlist og hönnun

    • Myndlistarfólk, myndlistarhópar og hönnuðir sem vinna með ólíkan efnivið eins og til dæmis olíu, akríl, keramík, tréverk, textíl, ljósmyndir og videóverk og annan efnivið (listinn er ekki tæmandi). 

Dómnefnd mun sjá um að velja listafólk ársins

Með tilnefningunni skal fylgja:

  • Yfirlit af a.m.k. fimm verkum eftir listamanneskjuna eða listhópinn. Hægt er að senda ljósmyndir, hljóðupptöku, myndbönd, texta eða hvað sem hentar því listformi sem listamanneskjan eða listhópurinn vinnur í

  • Stuttur texti um listamanneskjuna eða listhópinn

  • Nafn, símanúmer og netfang hjá listamanneskju/listhópnum og þeim sem tilnefnir

Tilnefning telst einungis gild ef allar upplýsingar fylgja með.

Ertu með spurningar eða vantar þig aðstoð?

Ekki hika við að hafa samband við info@listin.is eða í síma 6918756

HÆGT ER AÐ TILNEFNA TIL OG MEÐ 22. maí 2026

List án landamæra