Opinberun listamanns hátíðarinnar 2022

Árlega velur hátíðin listamann ársins sem hlýtur sértakan heiðursess það árið.

Komið og fagnið með okkar á stuttum og skemmtilegum viðburði í Ráðhúsi Reykjavíkur þann 3. maí klukkan 16:00-17:00.

Borgarstjóri Reykjavíkur Dagur B. Eggertsson mun opinbera og heiðra listamann Listar án landamæra 2022.

Sunna Dögg Ágústsdóttir, verkefnastjori Ungmennaráðs Þroskahjálpar, mun ávarpa gesti um mikilvægi menningar í réttindabaráttu.

Eftir ræðuhöldin verða léttar veitingar í boði og velkomið að sitja áfram og spjalla.

Viðburðurinn verður táknmálstúlkaður.

Aðgengi fyrir hreyfihamlaða er grænt: Blá bílastæði í bílakjallara, lyfta niður í samkomusal og rampar við innganga.

Facebookviðburð má finna hér

List án landamæra