Óskað eftir listrænum stjórnanda Listar án landamæra

Óskað er eftir listrænum stjórnanda listahátíðarinnar Listar án landamæra. Umsækjandi þarf að geta hafið störf í byrjun mars. List án landamæra er listahátíð sem leggur áherslu á list fatlaðs fólks og inngildandi listheim. Hátíðin var fyrst haldin árið 2003. Hún sýnir öll listform og stendur fyrir samstarfi á milli listamanna. Hátíðin er eini vettvangurinn á Íslandi sem leggur alfarið áherslu á listsköpun fatlaðs listafólks og hefur skapað sér sérstöðu innan menningarlífsins á Íslandi. List án landamæra leggur áherslu á að list fatlaðs listafólks sé metin til jafns innan listheimsins og list ófatlaðs listafólks.

Starf listræns stjórnanda er fjölbreytt og skapandi og er starfshlutfall samkomulag. 


Helstu verkefni

  • Listræn stjórnun hátíðar og mótun dagskrár.

  • Umsjón með fjármögnun og fjármálum.

  • Umsjón með framkvæmd og skipulagi.

  • Kynningarmál.

  • Samskipti og aðstoð við listafólk.

  • Samtal og samstarf við aðra aðila í listheiminum.
     

Hæfniviðmið

  • Þekking og áhugi á málefnum fatlaðs fólks og aðgengi að listheiminum.

  • Menntun, þekking og reynsla af menningarstarfi og listum er æskileg.

  • Reynsla af fjármögnun listviðburða.

  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Góð samskiptahæfni

  • Þekking á markaðsetningu á helstu samfélagsmiðlum t.d. Facebook, Instagram, Squarespace og Mailchimp.

Umsóknir sendist á netfangið: info@listin.is til og með 14. febrúar 2020 merkt Starfsumsókn. Frekari upplýsingar fást í síma 6918756, www.listin.is eða á info@listin.is

List án landamæra