Samsýning Listar án landamæra 2019 hefur verið framlengd til sunnudagsins 3. nóvember nk. Við hvetjum alla sem ekki enn hafa lagt leið sína í Gerðuberg til að gera það og skoða þessa frábæru sýningu.
Read MoreList án landamæra býður stjórnendum og skipuleggjendum menningarviðburða á morgunverðarfund föstudaginn 18. október kl. 9:30 í Bergi í Gerðubergi. Yfirskrift fundarins er Aðgengi að menningu fyrir fatlað fólk. Fluttar verða þrjár hugvekjur en auk þess mun hátíðin leggja fram gátlista sem skipuleggjendur ættu að geta stuðst við til að auka aðgengi.
Read MoreList án landamæra heldur ritlistasmiðju fyrir fatlaða listamenn dagana 16., 17. og 18. október. Leiðbeinandi er rithöfundurinn Guðrún Eva Mínervudóttir. Námskeiðinu lýkur með upplestri á lokahátíð Listar án landamæra sunnudaginn 20. október.
Read MoreList án landamæra stendur fyrir listamarkaði í Gerðubergi 12. og 13. október nk. Listamenn, handverksfólk og hönnuðir geta skráð sig og selt verk sín.
Read MoreLeitað er að ungu fólki með fötlun á aldrinum 16 til 30 ára til að taka þátt í nýju sviðsverki. Verkið verður frumsýnt á hátíðinni Reykjavík Dance Festival í nóvember.
Read MoreNý stefnumótun hefur verið unnin fyrir List án landamæra. Örlítið breyttar áherslur eru á hátíðinni auk þess sem hún verður haldin að hausti, en ekki vori eins og áður hefur verið. Lesa má allt um stefnumótunina og nýjar áherslur hér.
Read MoreErt þú með hugmynd að verki eða viðburði sem að þú vilt sýna á List án landamæra? Viltu halda sýningu, tónleikar, vera með gjörning eða opna vinnustofu? Allir geta verið með viðburð á utan-dagskrá List án landamæra 2019. Sæktu um fyrir 13. september 2019
Read MoreAtli Már Indriðason hefur verið valinn listamaður List án landamæra árið 2019. Atli Már mun opna sýningu í Listsal Mosfellsbæjar 3. maí nk.
Read MoreÞriðjudaginn 2.apríl kl. 20:00, fara fram í fjórða skiptið, einstakir tónleikar í Hljómahöll í Reykjanesbæ sem bera nafnið „Hljómlist án landamæra“.
Read MoreListamaður List án landamæra má koma út hvaða listgrein sem er og getur hver sem er tilnefnt listamann. Lögð er sérstök áhersla á listamanninn og verk hans á hátíðinni og auk þess verða verk eftir hann notuð á samfélagsmiðlum hátíðarinnar sem og á prentefni
Read More