Opið kall: Auglýst eftir listafólki til að sýna í Gerðubergi á hátíðinni í haust
List án landamæra auglýsa eftir listafólki til að sýna á hátíðinni 2022!
Þemaið er Margir Heimar, allskonar líf.
Öll geta sótt um með hvernig list sem er: tónlist, myndlist, leiklist, dans, sögur, ljóð eða hvað sem er annað. Úr umsóknum verður valið inn í sýningar og viðburði í Gerðubergi á dagskrá List án landamæra í október 2022.
Hvað þýðir Margir heimar, allskonar líf? Lesið nánar hér!
Read More
Elfa Björk Jónsdóttir - Listamaður Listar án landamæra 2022!
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur veitti Elfu Björk Jónsdóttur viðurkenninguna Listamaður Listar án landamæra 2022 við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur þann 3. maí.
Read More
Opið fyrir tilnefningar í listamann hátíðarinnar 2022
Frestur til þess að tilnefna listamann hátíðarinnar 2022 er til 30. mars 2022.
Read More
Dagskrá Listar án landamæra 2021
Nú er búið að birta dagskrá hátíðarinnar 2021! Hátíðin mun opna þann 26. október kl 17:00 með myndlistarsýningu, tónleikum og ræðuhöldum í Ráðhúsinu. Listamaður hátíðarinnar mun hljóta sérstaka viðurkenningu og öll dagskrá hátíðarinnar verður betur kynnt.
Dagskráin að neðan er ekki tæmandi, fleiri viðburðir munu bætast við. Lifandi dagskrá með nánari upplýsinum um hvern viðburð verður aðgengileg hér á vefnum.
Við hlökkum mikið til að bjóða ykkur velkomin í tveggja vikna menningarveislu!
Read More
Frestur til að tilnefna listamann hátíðarinnar framlengdur til 5. september
Þar sem styttri fyrirvari er á tilnefningum í ár heldur en á árum áður hafa listrænn stjórnandi og stjórn ákveðið að framlengja umsóknarfrest í listamann hátíðarinnar til miðnættis sunnudag 5. september næst komandi.
Read More