Til hamingju með List án landamæra 2020!

Um 50 listamenn deila listsköpun sinni með gestum á hátíðinni 2020, á 10 mismunandi sýningastöðum, sem allir hafa sannað sig sem málsmetandi vettvangur listar í landinu og velja listamenn inn í sitt mengi byggt á því að listamenn hafi eitthvað mikilvægt og gefandi fram að færa.
Og því er svo sannarlega að heilsa á hátíðinni árið 2020 sem fyrri ár!

Read More
List án landamæra
Samstarf Listar án landamæra um fyrsta hlaðvarp um mannréttindi fatlaðra á Íslandi

Mannréttindi fatlaðra er nýtt hlaðvarp og fræðsluerindi, sem þau Aileen Soffía Svensdóttir og Haukur Guðmundsson sjá um. Hlaðvarpið er hið fyrsta á Íslandi um mannréttindi fatlaðra, með það markmið að auka vitund og þekkingu á mannréttindum fatlaðra.
Töluverð áhersla er lögð á skapandi þætti í lífi fatlaðra, listsköpun og menningu. Talað verður við fatlaða og ófatlaða listamenn, forstöðumenn menningarstofnana, menningarfjölmiðlafólk og listunnendur.
Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við List án landamæra.

Read More
List án landamæra